Kæru viðskiptavinir
Verð í vefverslun er það sama og í verslun, flutningskostnaður er greiddur af kaupanda. Farið er með pantanir í póst á þriðjudögum og fimmtudögum, en ef mikið liggur við er velkomið að hafa samband og við reynum að senda samdægurs.
Velkomið er að breyta nýjum flíkum til að þær passi betur og er breytingagjald yfirleitt um 2000 kr fyrir hverja breytingu. Vegna anna á saumastofu er því miður ekki möguleiki að taka eldri flíkur en eins árs inn til viðgerða eða breytinga.
Fatnaðurinn er yfirleitt framleiddur í 3 stærðum, S (36-38) M (40-42) og L (44-46)
Við förum eftir lögum um skilarétt kaupenda, þær kveða á um skiptarétt í 14 daga, en ekki er hægt að fá endurgreitt nema um það sé samið og þá aðeins næsta dag. Inneignarnótur og gjafabréf gilda í 4 ár. Hægt er að skila útsöluvörum fyrir aðra vöru á útsölu. Við leggjum metnað í að fötin hjá okkur séu úr vönduðum efnum sem endast vel en ef þvottaleiðbeiningum er ekki fylgt, eða efnalaug eyðileggur flík, getum við skiljanlega ekki bætt það.
Við vonum að nýja GuSt flíkin þín verði uppáhaldsflík um ókomin ár!


